Leita í fréttum mbl.is

Gerum þá eitthvað til að halda ímyndinni...

Ef að við eigum hættu á að missa titilinn á næstu árum, hvernig væri þá að stuðla að því að fækka bílum í landinu. Sé ekki hvernig það er hægt ef að strætó er eins og hann er!!!
mbl.is Reykjavík valin grænasta borgin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

okei en....

Eru ekki öll eiturlyf bannvæn, er ég svona vitlaus eða?
mbl.is Banvænt fíkniefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og....

í alvöru hverjum kemur það við. Hver þarf að vita það? Hvað er málið? Það er greinilegt að hún er veik, hún er ekki að fá neina sérmeðferð, nema þá niðurlægjingu í fjölmiðlum! Hvar er réttlætið?
mbl.is Sýslumanninum í Los Angeles gert að útskýra hvers vegna Hilton var sleppt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

æi...ohhhh....

Ég sem hef nýtt mér það að láta kærastann grilla og liggja upp í sófa á meðan hann sér um matinn, fyrir vikið á ég meiri hættu að fá krabbamein. Lífið er ósanngjarnt! Ef að ég vil forðast krabbamein verð ég að elda sjálf, en ég er svo þreytt... usss og svei!

 p.s Ég á afmæli í dag, húrra!


mbl.is Grillarar lifa hættulegu lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...Og hver byrjaði!

Og nú veit enginn hvort að hún hafi farið og spjallað við Timbaland af fyrra bragði eða hvort Timba hafi verið að reyna við dömuna. Ég kýs að halda það fyrra, og hver byrjaði þá.... er það ekki unnustan? Ég skil nú ekki að Timba sé í fangelsi þar sem að það var kallað að honum ókvæðis orðum og honum ógnað.... ættu þau ekki bara öll að fara saman í klefa til að ræða málin.

 Hvernig hefði þú brugðist við?

 Greyið fræga fólkið, það á ekki sjö dagana sæla!


mbl.is Timbaland handtekinn vegna slagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greyið Paris

Mér finnst allir vera svo neikvæðir í garð Parisar, ég einfaldlega verð að segja að ég vorkenni henni. Hún er greinilega ekki heil á geði og á fullan rétt á því að afplána dóm sinn á sjúkrastofnun.
Manneskja sem að ofþornar vegna þeirra hræðslu að piss og kúka inn í klefa er ekki heil. Ég er svo einföld ef að ég þyrfti að kúka eða pissa fyrir framan aðra þá myndi ég einfaldlega gera það þó að það yrði erfitt.

 Ég vildi óska þess að hún fengi bara að afplána dóminn heima hjá sér, þá væri hún minna í fjölmiðlum og maður þarf ekki að hafa áhyggjur afþví að hún fari sér að voða með því að svelta sig. Hún á greinilega við andlegt vandamál að stríða.

 Við verðum að athuga það að hún hefur ekki lifað eðlilegu lífi, hún hefur notið þeirra forréttinda að vera rík og lifa vel auk þess sem að hún er fræg hvort sem að það eru forréttindi eða ekki. Ég held að ég væri líka á nálum ef að ég lifði í þeim heimi sem að hún lifir í..... ljósmyndarar á hverju götuhorni.

 Ég sendi Paris góða strauma og vona að hún geti átt hægðir í friði!


mbl.is París þorir ekki á salernið í fangelsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Hulda B. Benediktsdóttir Waage
Hulda B. Benediktsdóttir Waage
Ég hef skoðun!

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband